Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1650392291.53

    Vinnuaðferðir og tækni 6
    VOTF3BM05
    1
    Vinnuaðferðir og tækni 6
    Bílamálarar
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Nemendur fá þjálfun í meðhöndlun á efnum og verkfærum sem unnið er með við sprautumálun á ökutækjum. Áhersla er lögð á þær vinnuaðferðir sem henta viðkomandi vinnuáætlun sem nemandi fær í hendur. Áhersla lögð á að fara eftir fyrirmælum framleiðenda um notkun efna og tækja og nota TDS og SDS.
    Vinnuaðferðir og tækni 5
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Vinnuaðferðum og tæknibúnaði sem beita þarf við undirbúning og málun ökutækja.
    • Leiðbeiningum bílaframleiðenda og mikilvægi þess að farið sé eftir þeim fyrirmælum.
    • TDS, SDS til að geta farið eftir þeim.
    • Verklýsingum og vinnuferlum þegar verið er að gera við ökutæki.
    • Persónuvörnum sem nota skal við viðgerðir á ökutækjum.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Meðhöndla öll þau efni sem þarf til að viðgerð standist kröfur framleiðanda.
    • Beita þeim aðferðum sem þarf til að viðgerð sé viðunandi.
    • Velja þau tæki, tæknibúnað og verkfæri sem eiga við hverju sinni.
    • Ganga vel um og hafa snyrtilegt í kringum sig.
    • Þrífa verkfæri og tæki.
    • Nota þær persónuvarnir sem nota skal við viðgerðir á ökutækjum.
    • Gera greinargóða verklýsingu á unnu verki.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Að gera verkáætlanir og magnáætlun um notkun efna við tiltekið verk.
    • Vinna eftir verkáætlun til þess að endanlegt útlit og áferð sé í fullu samræmi við kröfur viðskiptavinar.
    • Vinnan sé í fullu samræmi við viðurkenndar aðferðir framleiðenda ökutækja og efnis (OEM, TDS og SDS) Velja réttan búnað, tæki og efni til notkunar.
    • Skrifa greinargóða verklýsingu á því verki sem unnið er.
    • Nota persónuvarnir á réttan hátt svo enginn skaði hljótist af.
    Símat. Verkefni sem tengjast hæfniviðmiðum áfangans verða lögð fyrir og metin.