Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1650390921.45

    Spraututækni og mælingar
    SPMÆ2BM05
    1
    Spraututækni og mælingar
    Bílamálarar
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Gerðar einfaldar æfingar í meðferð og umhirðu tækja og tæknibúnaðar. Farið yfir framkvæmd á vinnuferli sem fylgir sprautumálun. Efnisþættir eru tveggja þátta spartl og málun á grunni. Nemendur læra að fara eftir fyrirmælum framleiðenda. Farið yfir þær persónuvarnir sem skal nota við spörtlun og grunnun.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Helstu verkfærum og tækjabúnaði.
    • Viðhaldi og viðgerðum á máluðu yfirborði ökutækja.
    • Uppbyggingu málningarlaga.
    • Vali málningarefna fyrir smærri og stærri farartæki.
    • Persónuvörnum sem nota skal við viðgerðir á ökutækjum.
    • Leiðbeiningum bílaframleiðenda.
    • TDS og SDS lakkframleiðenda.
    • Verkskýrslum.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Nota verkfæri og tæki til viðgerðar á máluðum flötum bifreiða.
    • Meta ástand og viðgerðir á máluðu yfirborði bifreiða.
    • Meta uppbyggingu málningarlaga út frá leiðbeiningum bíla- og lakkframleiðenda.
    • Velja réttan búnað og efni til notkunar eftir leiðbeiningum framleiðanda (OEM) og eftir stærð ökutækja.
    • Nota persónuvarnir á réttan hátt svo enginn skaði hljótist af.
    • Fylla út og skrifa greinagóða verklýsingu.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Velja þau tæki, tæknibúnað og verkfæri sem við eiga hverju sinni
    • Nota rétt efni við vinnu sína.
    • Mála smærri og stærri ökutæki.
    • Gera greinagóða verklýsingu á unnu verki.
    • Nota viðeigandi persónuvarnir.
    Símat. Verkefni sem tengjast hæfniviðmiðum áfangans verða lögð fyrir og metin.