Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1650389885.94

    Vinnuaðferðir og tækni 2
    VOTB2BM05
    1
    Vinnuaðferðir og tækni 2
    Bílamálarar
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Nemendur nýta sér þá þekkingu, leikni og hæfni sem þeir hafa öðlast til þess að vinna verkefni sjálfstætt. Vinna eftir verk- eða vinnuáætlun til þess að endanlegt útlit og áferð sé í fullu samræmi við þær kröfur sem gerðar eru og í fullu samræmi við viðurkenndar aðferðir framleiðenda ökutækja og efna.
    Vinnuaðferðir og tækni 1.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Vinnuaðferðum og tæknibúnaði sem beita þarf við undirbúning og málun ökutækja.
    • Notkun á réttum hlífðarbúnaði.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Meðhöndla vatnsefni.
    • Nota blautt í blautt aðferðir.
    • Eyða út litum og glæru.
    • Pakka inn til að ná sem bestri útkomu.
    • Ganga vel um vinnusvæði og halda því snyrtilegu
    • Þrífa verkfæri og tæki.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Gera verkáætlanir og magnáætlun um notkun efna í tilteknu verki.
    • Vinna eftir verkáætlun til þess að endanlegt útlit og áferð sé í fullu samræmi við kröfur viðskiptavinar og viðurkenndar aðferðir framleiðenda ökutækis og efnisframleiðenda.
    Símat. Verkefni sem tengjast hæfniviðmiðum áfangans verða lögð fyrir og metin.