Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1650389224.29

    Plastviðgerðir
    PLST2BM03
    1
    Plastviðgerðir
    Bílamálarar
    Samþykkt af skóla
    2
    3
    Farið er yfir efnauppbyggingu hitafastra og hitadeigra plastefna. Æfð greining plastefna. Æfðar suður og límingar jafnhliða greiningu, bæði á nýju efni og ökutækjahlutum. Kynntir möguleikar við mótun plastefna við smíði hluta í yfirbyggingar ökutækja. Áhersla er lögð á hættur af reyk og uppgufun efna í plastviðgerðum.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Efnauppbyggingu hitafastra og hitadeigra plastefna.
    • Möguleikum við mótun plastefna við smíði hluta í yfirbyggingar ökutækja.
    • Hættum af reyk og uppgufun efna í plastviðgerðum.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Bræða saman mismunandi gerðir plastefna með heitu lofti og með rafhitun.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Lýsa efnauppbyggingu plastefna og greina þau í undir- og yfirflokka.
    • Greina plastefni samkvæmt leiðbeiningum framleiðenda.
    • Velja viðgerðaraðferð eftir eðli efnisins.
    • Framkvæma viðgerð og nýsmíði plasthluta.
    Símat. Verkefni sem tengjast hæfniviðmiðum áfangans verða lögð fyrir og metin.