Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1650363532.49

    Bilanagreining brunahreyfla
    BIBR4BV05
    1
    Bilanagreining brunahreyfla
    Bifvélavirkjar
    Samþykkt af skóla
    4
    5
    Fjallað er um mismunandi gerðir bilana í hreyflum. Farið er yfir skipulag og framkvæmd bilanagreininga. Unnin eru verkefni í skipulagi og framkvæmd bilanagreininga á hreyflum. Áhersla er á nákvæmt skipulag, notkun mælitækja, mat á niðurstöðum mælinga og notkun tækniupplýsinga.
    Rafmagnsfræði og mælingar, Uppbygging og virkni brunahreyfla, Stjórnbúnaður brunahreyfla, Vélarskoðun og viðgerðir brunahreyfla.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Mikilvægi skiplags við bilanagreiningar.
    • Gerð skipulags fyrir bilanagreiningu.
    • Notkun mælitækja við bilanagreiningar.
    • Niðurstöðum mælinga á hreyflum, raf- og vélbúnaði.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Útskýra mikilvægi skipulags bilanagreininga.
    • Framkvæma bilanagreiningar á hreyflum, raf- og vélbúnaði á skipulagðan hátt.
    • Nota viðeigandi mælitæki og tækniupplýsingar.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Framkvæma bilanagreiningar á hreyflum, raf- og vélbúnaði á skipulagðan hátt.
    • Framkvæma öruggar og hagkvæmar viðgerðir á hreyflum, raf- og vélbúnaði.
    Símat. Verkefni sem tengjast hæfniviðmiðum áfangans verða lögð fyrir og metin.