Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1650363305.04

    Rafmagn – bilanagreining rafbúnaðar
    RABR4BV05
    1
    Rafmagn – bilanagreining rafbúnaðar
    Bifvélavirkjar
    Samþykkt af skóla
    4
    5
    Fjallað er um mismunandi gerðir bilana í rafbúnaði/-rásum. Farið er yfir skipulag og framkvæmd bilanagreininga. Unnin eru verkefni í skipulagi og framkvæmd bilanagreininga í raf- og rafeindabúnaði. Áhersla er á nákvæmt skipulag, notkun mælitækja, mat á niðurstöðum mælinga og notkun tækniupplýsinga.
    Rafmagnsfræði og mælingar, Rafmagnsteikningar og -leiðslur, Rafmagn – bilanagreining rafbúnaðar.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Mikilvægi skiplags við bilanagreiningar.
    • Gerð skipulags fyrir bilanagreiningu.
    • Notkun mælitækja við bilanagreiningar.
    • Niðurstöðum mælinga í raf- og rafeindabúnaði.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Útskýra mikilvægi skipulags bilanagreininga.
    • Framkvæma bilanagreiningar í raf- og rafeindabúnaði á skipulagðan hátt.
    • Nota viðeigandi mælitæki og tækniupplýsingar.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Framkvæma bilanagreiningar á raf- og rafeindabúnaði á skipulagðan hátt.
    • Gera við bilanir á öruggan hátt.
    Símat. Verkefni sem tengjast hæfniviðmiðum áfangans verða lögð fyrir og metin.