Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1649868342.16

    Rafmagn – ræsi- og hleðslukerfi
    RARH3BV05
    1
    Rafmagn – ræsi- og hleðslukerfi
    Bifvélavirkjar
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Farið er í uppbyggingu og virkni mismunandi ræsi- og hleðslukerfa í bensín- og dísilbílum. Framkvæmdar eru bilanagreiningar og viðgerðir á kerfunum og íhlutum. Áhersla er á notkun mælitækja og tækniupplýsinga og mat á niðurstöðum mælinga.
    Rafmagnsfræði og mælingar.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Virkni ræsi- og hleðslukerfa.
    • Virkni helstu íhluta.
    • Helstu aðferðum og mælitækjum við bilanagreiningu.
    • Helstu aðferðum og tækjum við viðgerðir á íhlutum.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Útskýra virkni ræsi- og hleðslukerfa.
    • Framkvæma bilanagreiningu og viðgerðir á ræsi- og hleðslukerfum.
    • Nota viðeigandi mælitæki og tækniupplýsingar.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Bilanagreina og lagfæra ræsi- og hleðslukerfi.
    • Útskýra virkni ræsi- og hleðslukerfa og helstu orsakir bilana.
    Símat. Verkefni sem tengjast hæfniviðmiðum áfangans verða lögð fyrir og metin.