Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1649866771.04

    Undirvagn og stýrisbúnaður
    UNST2BV05
    1
    Undirvagn og stýrisbúnaður
    Bifvélavirkjar
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum er farið yfir uppbyggingu og virkni mismunandi gerða stýrisbúnaðar í bílum. Fjallað er um einstaka íhluti, virkni þeirra og búnaðinn í heild, með og án hjálparátaks. Farið er yfir þjónustuþætti, bilanagreiningu, viðgerðir og hjólastillingar með áherslu á mat á niðurstöðum mælinga. Nemendur vinna verkefni í bilanagreiningum, viðgerðum og hjólastillingum. Farið er yfir notkun verkfæra, mælitækja og tækniupplýsinga, með áherslu örugga umgengni við SRS kerfið.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Uppbyggingu og virkni stýrisbúnaðar.
    • Mismunandi gerðum aflstýra.
    • Hjólahornum og hlutverki þeirra.
    • Mikilvægi réttrar stillingar stýrisbúnaðar.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Meta ástand og framkvæma viðgerðir á stýrisbúnaði.
    • Mæla hjólahorn og meta niðurstöður mælinga. Framkvæma hjólastillingar.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Útskýra virkni og hlutverk einstakra íhluta stýrisbúnaðar og kerfisins í heild.
    • Framkvæma bilanagreiningu, þjónustu og viðgerðir á stýrisbúnaði.
    • Mæla hjólastöðu og hagnýta niðurstöður mælinga.
    • Framkvæma hjólastillingar.
    Símat. Verkefni sem tengjast hæfniviðmiðum áfangans verða lögð fyrir og metin.