Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1649782356.4

    Samsetning og frágangur
    SAFR2BS03
    1
    Samsetning og frágangur
    Bifreiðasmiðir
    Samþykkt af skóla
    2
    3
    Þjálfaðar eru aðferðir við að setja saman og stilla viðeigandi hluti bifreiða eftir viðgerð. Farið er yfir þær áherslur sem framleiðendur setja með bil á milli hluta og stillingar í læsingar. Fjallað er um mikilvægi þess að vinna samkvæmt fyrirmælum framleiðenda og nota rétt verkfæri. Nemendur þjálfast í meðferð og notkun aflestrartölvu. Áhersla er lögð er á vönduð vinnubrögð, skipulag og hreinlæti.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Aðferðum við að setja saman mismunandi íhluti yfirbyggingar.
    • Frágangi og stillingu mismunandi íhluta yfirbygginga.
    • Mikilvægi nákvæmrar samsetningar á bifreiðum.
    • Mikilvægi notkunar leiðbeininga framleiðenda.
    • Upplýsingum í aflestrartölvu.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Setja mismunandi íhluti yfirbyggingar saman.
    • Nota viðeigandi verkfæri og tækniupplýsingar.
    • Nota aflestrartölvu.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Setja saman mismunandi íhluti yfirbyggingar eftir viðgerð.
    • Framkvæma lokafrágang og stillingar eftir viðgerð.
    • Fylgja leiðbeiningum framleiðanda.
    • Lesa úr og hagnýta upplýsingar í aflestrartölvu.
    Símat. Verkefni sem tengjast hæfniviðmiðum áfangans verða lögð fyrir og metin.