Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1649778850.64

    Hemlar
    BBHE2BS03
    1
    Hemlar
    Bifreiðasmiðir
    Samþykkt af skóla
    2
    3
    Farið er yfir uppbyggingu og virkni hemlakerfa bíla. Fjallað um bilanagreiningu og viðgerðir á mismunandi íhlutum hemlakerfa. Unnin eru verkefni í mati á og viðgerðum mismunandi hluta hemlakerfa. Fjallað um hemlavökva og mikilvægi notkunar tækniupplýsinga.
    Grunnnám bíliðngreina.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Uppbyggingu og virkni hemlakerfa.
    • Aðferðum við mat á hemlakerfum.
    • Notkun tækniupplýsinga.
    • Íhlutum og efnum sem notuð eru við viðgerðir og þjónustu hemlakerfa.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Framkvæma bilanagreiningu á hemlabúnaði.
    • Gera við hemlabúnað.
    • Nota tækniupplýsingar.
    • Nota viðeigandi tæki og verkfæri.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Framkvæma bilanagreiningu og viðgerð á hemlabúnaði.
    • Þjónusta hemlabúnað á öruggan hátt.
    Símat. Verkefni sem tengjast hæfniviðmiðum áfangans verða lögð fyrir og metin.