Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1649764591.74

    Rétting og mæling burðarvirkis
    RÉMÆ3BS05
    1
    Rétting og mæling burðarvirkis
    Bifreiðasmiðir
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Unnin eru mismunandi verkefni í réttingu á burðarvirki bifreiða. Æfðar eru mismunandi aðferðir og notkun mismunandi tækja og verkfæra. Þjálfuð er notkun réttinga- og mælitækja. Áhersla er á að vinna samkvæmt fyrirmælum framleiðanda og einnig rétta og markvissa notkun hlífðar- og öryggisbúnaðar.
    Rétting og fylling
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Mismunandi aðferðum við réttingu burðarvirkis bifreiða.
    • Notkun viðeigandi tækja og verkfæra.
    • Mikilvægi þess að styðjast við fyrirmæli framleiðanda og tækniupplýsingar.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Rétta burðarvirki bifreiða.
    • Nota viðeigandi tæki og verkfæri.
    • Fylgja fyrirmælum framleiðanda og styðjast við tækniupplýsingar.
    • Nota viðeigandi öryggis- og hlífðarbúnað.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Rétta burðarvirki bifreiða.
    • Notað viðeigandi aðferðir, verkfæri og tæki.
    • Fylgja fyrirmælum framleiðanda.
    • Gæta öryggis síns og annarra við vinnuna.
    Símat. Verkefni sem tengjast hæfniviðmiðum áfangans verða lögð fyrir og metin.