Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1649696373.41

    Kynning á bíliðngreinum
    BÍLA1BK03
    1
    Kynning á bíliðngreinum
    Bíliðngreinar kynntar
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    Farið yfir grunnþætti, nám og félagslega þætti starfa í bíliðngreinum. Farið yfir starfsmöguleika í greinunum. Farið er yfir starfsnámsferlið, gerð samninga um nám á vinnustað og ferilbók. Nemendur læra að koma sér á framfæri, gera ferilskrá og fleira sem tengist atvinnuumsóknum. Æfingar í notkun námsvefs í framhaldsskóla.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Mismunandi bíliðngreinum.
    • Hæfnikröfum hverrar greinar.
    • Eigin áhugasviði í tengslum við bíliðngreinar.
    • Tilgangi ferilskráa og því sem þar þarf að koma fram.
    • Atvinnuviðtölum.
    • Atvinnuumsóknum.
    • Gerð samninga um nám á vinnustað.
    • Ferilbók.
    • Námsvef skólans.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Tengja eigið áhugasvið við starfsvettvang.
    • Átta sig á eigin styrkleikum og veikleikum og hvernig þeir nýtast í mismunandi námi og störfum.
    • Setja upp gagnlega ferilskrá.
    • Greina á milli hvað eru nauðsynlegar upplýsingar í ferilskrá og hverju má sleppa.
    • Draga fram eigin kosti í atvinnuumsókn.
    • Átta sig á hvernig atvinnuviðtöl virka.
    • Skila inn verkefnum og sækja efni á námsvefinn.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Velja sér viðeigandi nám í bíliðngreinum út frá áhugasviði og hæfni.
    • Gera hnitmiðaða og vel upp setta ferilskrá.
    • Skila inn vandaðri umsókn um nám í bíliðngreinum.
    • Nota ferilbók og gera samning um starfsnám.
    • Yfirfæra þekkinguna til að búa til vandaðar náms- og atvinnuumsóknir
    Símat. Verkefni sem tengjast hæfniviðmiðum áfangans verða lögð fyrir og metin.