Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1631269984.87

    Glæpasögur
    ÍSLE3GL05
    105
    íslenska
    glæpasögur
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum verða lesnar íslenskar og erlendar glæpasögur. Fjallað verður um sögu glæpasagnaritunar, stöðu glæpasögunnar innan bókmenntanna og glæpasöguformið skoðað. Þróun glæpasagna í gegnum tíðina verður könnuð út frá samfélagslegum áhrifum. Nemendur lesa glæpasögur og horfa á þætti og kvikmyndir sem tengjast völdum sögum. Þá verður reynt að svara spurningunni „af hverju erum við svona heilluð af glæpum?“
    5 einingar í íslensku á 3. þrepi.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu einkennum bókmenntategundarinnar
    • stöðu glæpasagna innan bókmennta
    • sögu og þróun glæpasagnaritunar erlendis og á Íslandi
    • tengslum bókmenntagreinarinnar við aðra miðla, svo sem kvikmyndir og sjónvarp
    • fjölbreyttum verkum innan greinarinnar eftir íslenska og erlenda höfunda
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita hugtökum bókmenntafræðinnar þegar fjallað er um glæpasögur
    • lesa og fjalla um glæpasögur á fræðilegan hátt
    • taka þátt í umræðum um bókmenntagreinina á málefnalegan og gagnrýninn hátt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • átta sig á tengslum samfélagslegrar þróunar og glæpasagna
    • taka afstöðu og tjá sig um bókmenntir á málefnalegan hátt
    • koma skoðunum sínum á framfæri með skýrum hætti og í vönduðu máli bæði í ræðu og riti
    Námsmat áfangans byggir á fjölbreyttri og skapandi verkefnavinnu ásamt þátttöku í kennslustundum.