Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1623244840.1

    Jarðfræði Íslands
    JARÐ2JÍ05
    17
    jarðfræði
    jarðfræði íslands
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    F
    Í áfanganum er jarðfræði Íslands í brennidepli. Lögð er sérstök áhersla á að nemendur öðlist dýpri skilning á uppruna landsins og flekareki, eldvirkni, jarðskjálftum, bergtegundum og jöklum. Einnig er lögð rík áhersla á að nemendur læri að „lesa“ landið, hvaða öfl hafa mótað það, hvernig og á hvaða tíma.
    Jarðfræði á 1. þrepi
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • • grundvallarhugtökum, skilgreiningum og flokkunarkerfum í jarðfræði
    • • helstu innrænum og útrænum öflum sem mótað hafa Ísland
    • • helstu gerðum eldstöðva og mismunandi virkni þeirra
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • • greina helstu gerðir steinda og bergs á Íslandi
    • • nota jarðfræðikort til þess að greina aldur og gerð bergs
    • • nota gögn frá jarðskjálftamælum til að reikna út stærð og fjarlægð jarðskjálfta
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • • yfirfæra bóklega þekkingu á fyrirbæri í náttúru Íslands
    • • beita rökhugsun til þess að „lesa“ myndun og mótun Íslands
    • • afla heimilda á íslensku, ensku og nota þær við ritgerðarsmíð