Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1599569776.28

    Bókhald I
    BÓKF1IB05
    9
    bókfærsla
    bókfærsla, inngangur
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í þessum byrjunaráfanga er fjallað um bókhaldshringrásina og helstu reglur tvíhliða bókhalds. Fjallað er um grundvallarhugtökin eignir, skuldir, gjöld og tekjur. Lögð er áhersla á að nemendur verði færir um að annast almennar færslur í dagbók, hafi skilning á uppgjöri og geti sett fram efnahags- og rekstrarreikning. Nemendum er veitt innsýn í notkun flestra reikninga sem telja má til grunnreikninga í fjárhagsbókhaldi. Nemendum er gerð grein fyrir tilgangi bókhalds og kynnt helstu lög um bókhald og virðisaukaskatt.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • grunnatriðum bókhalds svo sem eignum, skuldum, gjöldum og tekjum
    • bókhaldshringrásinni og færslum í dagbók og aðalbók
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • færa einfaldar dagbókarfærslur og gera prófjöfnuð
    • útbúa rekstrar- og efnahagsreikning í aðalbók
    • reikna vexti, virðisaukaskatt, laun, söluhagnað/tap og gera leiðréttingarfærslur
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • færa einfalt bókhald
    • túlka niðurstöður úr rekstrar- og efnahagsreikningi
    Sjá kennsluáætlun.