Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1476212667.36

    Danska 1.áfangi 2. þrep
    DANS2AA05(FB)
    16
    danska
    Almennur byrjunar áfangi
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    FB
    Þessi áfangi miðast við B1 í sjálfsmatsramma Evrópsku tungumálamöppunnar. Áfanginn er á öðru þrepi og unnið verður í að dýpka og byggja ofan á þekkingu, leikni og hæfni nemenda. Unnið verður með Portfolio möppuna, sjónvarps- og myndefni, þyngri texta, til dæmis blaða- og tímaritsgreinar, ásamt bókmenntatextum. Fjölbreyttar hlustunaræfingar svo sem viðtöl, tónlist, frásagnir og fleira. Notuð verða bæði einstaklingsverkefni og verkefni unnin í hóp, ásamt leikjum til að dýpka námsefnið og auka fjölbreytni. Lögð er áhersla á að textaval endurspegli kröfur námskrár um grunnþætti menntunar. Lögð er jöfn áhersla á alla fjóra færniþættina, tal, lestur, hlustun og ritun, bæði í kennslu og námsmati.
    Nemandi hafi lokið DANS 1CC05 eða lokið grunnskólaprófi í dönsku með einkunn A, B+ eða B.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þverfaglegum orðaforða til markvissrar notkunar, bæði munnlega og skriflega
    • rithefðum í textasmíði
    • mismunandi afstöðu og túlkun bókmenntatexta og dýpri merkingu texta
    • notkun hjálpargagna, svo sem orðabóka, leiðréttingaforrita auk ýmissa hjálpargagna á netinu
    • málkerfinu til markvissrar notkunar, bæði munnlega og skriflega
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa mismunandi textagerðir; blaðagreinar, sérhæfða texta og bókmenntatexta
    • beita þeim lestraraðferðum sem við eiga eftir gerð texta og viðfangsefnis
    • lesa mismunandi textagerðir; blaðagreinar, sérhæfða texta og bókmenntatexta
    • tjá sig munnlega á máli sem hæfir aðstæðum hverju sinni
    • tjá sig skriflega bæði á formlegan og óformlegan hátt
    • nota reglur málkerfisins tiltölulega villulaust
    • skilja aðalatriði venjulegs talmáls um kunnuglegt efni
    • skilja í grófum dráttum aðalatriði í útvarps- og sjónvarpsþáttum
    • skilja lýsingar á atburðum, tilfinningum og óskum annarra
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • tjá sig munnlega um ýmis viðfangsefni og nota tiltölulega flóknar setningar og orðasambönd til að lýsa reynslu sinni, væntingum og framtíðaráformum
    • rökstyðja mál sitt
    • undirbúa og segja í löngu máli frá efni sem tengist námsefninu, til dæmis sögu sem hefur verið lesin, eða kvikmynd
    • taka óundirbúinn þátt í samræðum um kunnugleg efni sem tengjast áhugamálum, daglegu lífi og málefnum líðandi stundar
    • skrifa tiltölulega flókinn og samfelldan texta um ýmis málefni frá eigin brjósti, til dæmis um málefni líðandi stundar og liðna atburði, áhugamál, ásamt efni sem tengist viðfangsefni kennslunnar
    • lesa sér til gagns tiltölulega flókna texta, geta fundið upplýsingar í hversdagslegu efni, blaða- og tímaritsgreinum
    • lesa og greina nútíma bókmenntatexta
    • lesa texta sem innihalda aðallega algeng orð úr daglegu lífi eða orðaforða sem tengist atvinnu
    • leita sér upplýsinga með hjálp upplýsingatækni og annarra hjálpargagna í tungumálanámi
    • Þekking er metin með lokaprófi, skriflegum könnunum og verkefnum sem bæði eru unnin heima og í kennslustundum • Leikni er metin með fjölbreyttum verkefnum, munnlegum kynningum og könnunum sem taka mið af færniþáttunum fjórum samkvæmt Evrópsku tungumálamöppunni, tali, hlustun, lestri og ritun. • Leikni og hæfni er metin með fjölbreyttum verkefnum sem sett eru í Portfolio-möppu Leiðsagnarmat er gefið fyrir Portfolio og nemendur hvattir til að betrumbæta vinnu sína. Lögð er áhersla á að nemendur sýni góð vinnubrögð og vandaðan frágang • Lokapróf metur hæfni nemanda til að skilja ólesinn texta, ritunarfærni og þekkingu hans á efni áfangans.