Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1445518027.64

    Stærðfræði
    STÆR1RU05
    76
    stærðfræði
    Rúmfræði og hornaföll
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Viðfangsefni áfangans eru undirstöðuhugtök evklíðskrar rúmfræði. Í áfanganum er lagður grunnur að skipulögðum vinnubrögðum, röksemdafærslu og nákvæmni í framsetningu við lausn verkefna í stærðfræði.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Undirstöðuhugtökum evklíðskrar rúmfræði
    • Hæð, miðlínu, og helmingalínu horns í þríhyrningi
    • Ferilhornum og miðhornum reglum um tengsl þeirra við hringboga
    • Einshyrndum þríhyrningum og reglu þar um
    • Reglu Pýþagórasar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Vinna á nákvæman og skipulagðan hátt með tölur og táknmál stærðfræðinnar
    • Beita undirstöðuatriðum evklíðskrar rúmfræði til að leysa margs konar verkefni, s.s. til að finna horn og hliðar í einföldum flatar- og rúmmyndum og reikna flatar- og rúmmál þeirra
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Setja margs konar verkefni upp með táknmáli stærðfræðinnar og leysa þau
    • Beita skipulögðum aðferðum við lausn verkefna og rökstyðja aðferðir sínar
    • Skrá lausnir sínar skipulega og skiptast á skoðunum um þær við aðra
    • Átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu
    • Vinna með merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu
    • Beita frumkvæði, innsæi og frumleika við lausn verkefna
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.