Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1430916177.89

    Félagsvísindi
    FÉLV1SF06(FB)
    13
    félagsvísindi
    Sjónarhorn félagsfræðinnar, einstaklingur og samfélag
    Samþykkt af skóla
    1
    6
    FB
    Í áfanganum eru grunneiningar samfélagsins skoðaðar út frá sjónarhorni félagsvísinda. Nemendur kynna sér félagslega þætti sem hafa áhrif á einstaklinginn, umhverfi hans og skoðað hvernig einstaklingurinn sjálfur getur haft áhrif á samfélagið. Einnig er lögð áhersla á að nemendur dýpki skilning sinn á skipulagi í eigin samfélagi og annarra svo þeir verði færir um að taka virkan þátt í samfélagslegum umræðum og geti myndað sér eigin skoðanir með gagnrýnið viðhorf að leiðarljósi.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • algengustu hugtökum í félagsvísindum
    • fjölskyldunni og umhverfi hennar, tilgangi félagslegra festa og helstu áhrifavalda í félagsmótun einstaklingsins
    • mismunandi samfélagsgerðum, ólíkum trúarbrögðum og fordómum
    • grunnhugtökum stjórnmálafræðinnar, s.s. lýðræði, valdi, þrískiptingu ríkisvaldsins og hægri/vinstri kvarðanum
    • íslenskum vinnumarkaði og umhverfi hans
    • mismunandi tegundum ofbeldis
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita algengustu hugtökum félagsvísinda
    • skilja tilgang félagslegra festa í samfélaginu, greina stöðu sína innan samfélagsins og þau áhrif sem einstaklingurinn hefur á umhverfi sitt
    • gera sér grein fyrir einkennum og þróun ólíkra samfélagsgerða og trúarbragða auk þess að vera meðvitaður um birtingarmynd fordóma
    • geta sett fram niðurstöður bæði munnlega og skriflega á skilmerkilegan hátt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta tjáð sig um samfélagsleg álitamál á skipulagðan og gagnrýnin hátt
    • gera sér grein fyrir samspili þekkingar, umburðarlyndis og fordóma
    • geta að einhverju leyti sett sig í spor þeirra sem búa við annan veruleika en einstaklingurinn sjálfur
    • geta tekið ábyrgð á eigin námi, beitt öguðum vinnubrögðum, metið heimildir og upplýsingar í félagsvísindum og unnið í samstarfi með öðrum.
    Þekking er metin með lokaprófi, stuttum tímaprófum og hópa- og einstaklingsverkefnum sem bæði eru unnin í tímum og heima. Leiknin er metin út frá skilningi á lesnum texta, tengslum námsefnis við ritaða texta nemanda og almennum vinnubrögðum í tímum og í heimaverkefnum. Hæfnin er metin út frá þátttöku og árangri í hópaverkefnum, samræðum, rökræðum og skoðanaskiptum við jafningja og kennara og hvernig nemendum gengur að miðla efni til jafningja sinna.