Í áfanganum er fjallað um sjúkraskrá og tilgang hennar. Fjallað er um uppsetningu ásamt færslum í reiti í sjúkraskrá. Farið er yfir lög um sjúklinga og sjúkraskrár, með áherslu á það sem viðkemur starfi læknaritara. Fjallað er um þagnarskyldu og mikilvægi hennar. Einnig er farið í skrif fyrir mismunandi sérgreinar læknisfræðinnar og sérfræðiorð fyrir hvert svið. Í áfanganum er skrifað fyrir lyflækningasvið svo sem sykursýki, almennar lyflækningar og hjartalyflækningar. Einnig er skrifað fyrir almennt skurðsvið, röntgendeild, taugalækningadeild, barnasvið og geðsvið.
Stúdentspróf eða sambærileg menntun, samanber inntökuskilyrði á læknaritarabraut
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
sjúkraskrám og varðveislu þeirra
gildandi lögum um réttindi sjúklinga og sjúkraskrár
hvernig einfaldar sjúkraskrár eru skrifaðar á tilteknum deildum
forritum sem notuð eru við vinnslu sjúkraskrár
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skrá í sjúkraskrá eftir einföldum upplestri
nota mismunandi forrit sem eru sérhæfð fyrir heilbrigðiskerfið
skrifa eftir upplestri einfaldar nótur í sjúkraskrá fyrir lyflækningasvið, almennt skurðsvið, röntgendeild, taugalækningadeild, barnasvið og geðsvið
leita að upplýsingum í sjúkraskrá
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nota rafræna sjúkraskrá
vinna eftir lögum er varða sjúklinga og sjúkraskrár