Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1366894190.66

    Félagslyfjafræði
    FÉLY1LL05(FÁ)
    1
    félagslyfjafræði
    lyfjafyrirtæki, lyfjastofnanir
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í áfanganum er fjallað um ýmsar stofnanir lyfjamála og það sem þeim tengist s.s. velferðarráðuneytið, hlutverk Lyfjastofnunar, ýmsar nefndir innan lyfjageirans, Sjúkratryggingar Íslands, Tryggingastofnun ríkisins, Upplýsingamiðstöð um eitranir, apótek, sjúkrahúsapótek, lyfjaskömmtunarfyrirtæki o.fl. Farið er yfir helstu atriði úr sögu lyfjafræðinnar. Nemendur fara í starfskynningu í apótek og lyfjastofnanir.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hlutverki helstu stofnana sem tengjast lyfjamálum
    • hlutverki lyfjaframleiðenda, -innflytjenda og -heildsala
    • starfsemi Upplýsingamiðstöðvar um eitranir
    • helstu atriðum úr sögu lyfjafræðinnar
    • lyfjamálum á heilbrigðisstofnunum og hlutverki sjúkrahúsapóteka
    • hlutverki lyfjaskömmtunarfyrirtækja
    • lögum um heilbrigðisþjónustu
    • helstu atriðum úr sögu lyfjafræðinnar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • miðla upplýsingum um starfsemi mismunandi heilbrigðisstofnana til sjúklinga
    • kynna fyrir samnemendum fjölbreytt störf lyfjatækna
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • gera sér grein fyrir hvar lyfjatæknar starfa í heilbrigðisgeiranum
    • gera sér grein fyrir þróun lyfjafræðinnar í sögulegu samhengi og skilja mikilvægi lyfja í baráttunni við sjúkdóma
    Símat, verkefni, ritgerðir, hlutapróf.