Í áfanganum eru nemendur í kór og vinna undir handleiðslu kórstjóra. Nemendur fá þjálfun í kórsöng og raddbeitingu. Unnið er með mismunandi tónlistarstefnur og stíla. Áfanganum lýkur með tónleikum.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
fjölbreyttum lögum sem sungin eru í kór
mikilvægi hvers og eins þátttakanda
grundvallartækni í söng
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
syngja í hópi
syngja raddað eða einraddað
anda rétt
hlusta
þekkja nótur eða blæbrigði
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
finna styrkleika sína í samsöng
koma fram fyrir framan áhorfendur
taka þátt í skólakór eða öðrum kórum
Námsmatið er einstaklingsmiðað og byggir á þátttöku og framförum nemanda.