Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1508238822.44

    Hjúkrun fullorðinna 2
    HJÚK2TV05
    2
    Hjúkrun, grunnur
    taugakerfi, verkir
    í vinnslu
    2
    5
    Fjallað er um hjúkrun sjúklinga með bráða- og langvinna sjúkdóma sem tengjast eftirtöldum kerfum: taugakerfi, innkirtlakerfi, ónæmiskerfi, stoðkerfi ásamt umfjöllun um smitgát, sár og sárameðferð, verki og verkjameðferð. Í áfanganum er lögð áhersla á tengingu fræðilegrar þekkingar við skipulagningu og framkvæmd hjúkrunar.
    HJÚK1AG05 og HJVG1VG05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • áhrifum bráðs og langvinns heilsubrests á sjálfsmynd og líðan skjólstæðinga með sjúkdóma í ofangreindum líffærakerfum
    • á mikilvægi hjúkrunarskráningar
    • hjúkrun sjúklinga með sjúkdóma í taugakerfi, innkirtlakerfi, ónæmiskerfi og stoðkerfi
    • smitgát, sárum og sárameðferð, verkjum og verkjameðferð
    • algengum sáraumbúðum og mismunandi notagildi þeirra
    • undirbúningi og eftirmeðferð vegna rannsókna og skurðaðgerða sem tengjast ofangreindum sjúkdómum
    • smitgátarvinnubrögðum
    • verkjameðferð annarri en lyfjum
    • helstu einkennum illkynja sjúkdóma í þeim líffærakerfum sem fjallað er um í lýsingu.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • sýna skjólstæðingi og aðstandendum stuðning og umhyggju
    • greina á milli mismunandi hjúkrunarþarfa langveikra, bráðveikra og mikið veikra sjúklinga með ofangreinda sjúkdóma
    • leiðbeina sjúklingum með ofangreinda sjúkdóma um athafnir daglegs lífs með tilliti til áhrifa sjúkdómsástands á sjálfsumönnun og heilsu
    • útskýra almennan og sérhæfðan undirbúning og eftirlit sjúklinga fyrir og eftir aðgerðir og rannsóknir sem tengjast ofangreindum sjúkdómum
    • nota mismunandi sáraumbúðir
    • útskýra mismunandi verkjameðferðir
    • útskýra algengar aukaverkanir meðferðar vegna illkynja sjúkdóma í ofangreindum líffærakerfum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • taka þátt í að undirbúa skjólstæðinga fyrir rannsóknir og aðgerðir sem tengjast ofangreindum sjúkdómum
    • geta nýtt sér hjúkrunarskráningu í starfi
    • bregðast við breytingum á ástandi sjúklings á faglegan hátt
    • sýna smitgát í verki
    • miðla upplýsingum um mismunandi verkjameðferðir
    • a
    Skv. skólanámskrá viðkomandi skóla