Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1503665371.52

    Vinnustaðanám í húsasmíði II
    VINS2HS30(BB)
    19
    vinnustaðanám
    Vinnustaðanám Húsasmíði II
    Samþykkt af skóla
    2
    30
    BB
    Í þessum áfanga fara nemendur í nám á vinnustað og getur nemandinn verið á mörgum vinnustöðum eftir verkefnum en vinnan er samræmd og skipulögð af skóla. Nemandinn á að vinna við neðangreinda verkþætti og skal öðlast þjálfun, leikni og hæfni í að vinna við verkþættina. Vægi verkþátta er eins og greint er hér fyrir neðan. Eftirfylgni með vinnu nemandans á tilgreindum verkþáttum á að vera með ferilbók sem skóli og nemandi fylla inn í eftir framvindu. Heild vinnustaðanáms í vikum: Steypt hús ‐ mótasmíði 7 vikur, Vinnupallar 1 vika, Klæðning útveggja 5 vikur, Þök 5 vikur, SAMTALS VIKUR: 18
    Nemendur hafa lokið fyrri hluta vinnustaðanáms.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • eiginleikum og vali á réttu klæðningarefni, loftræstum útveggjaklæðningum
    • eiginleikum og vali á réttri einangrun og frágangi á vindvörn eiginleikum efna sem notuð eru við smíðar á steypumótum
    • álagskröfum steypumóta t.d. fjarlægðir milli stoða, stífinga og á milli dregara og stoða álagskröfum vegna styrkleika vinnupalla sbr. byggingareglugerð, t.d. um fjarlægðir milli stoða og dregara
    • hæð á milli palla, styrk klæðningar, neglingu, staðsetningu á handriði og val á pallaefni vegna loftaundirsláttar
    • vali á réttum festingum fyrir grindur og klæðningar, loftræstingu þaka sbr. byggingarreglugerð
    • eiginleikum og styrkleikum sperruefnis
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • smíða vinnuborð, tröppur og búkka
    • stilla upp kerfismótum, og handflekamótum leggja niður steypu í steypumót
    • smíða hefðbundin steypumót t.d. sökkulmót, botnplötumót, veggjamót , loftamót og stigamót
    • smíða timburvinnupalla, stilla upp vinnupöllum, ganga frá þakgluggum og smíða þakkanta
    • ganga frá lektum og klæða útveggi
    • byggja upp loftræstingu fyrir klædda útveggi, ganga frá sperrum í steypumót
    • stóla sperru á steypta plötu
    • timburklæða þök, leggja þakpappa og þakjárn
    • ganga frá rennuböndum, skotrennum, kjöljárni og flastningum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • velja efni út frá styrkleikakröfum
    • meta burðarhæfni grunna m.a. vegna smíði steypumóta
    • mæla út fyrir mannvirkjum (húsum) skv. mæliblaði eða með uppgefnum afsetningarpunktum og taka hæð (skv. hæðarkvótum)
    Námsmat byggist á ferilbók sem skiptist í aðalverkþætti. Aðalverkþættir í seinni hluta vinnustaðanáms eru: Steypt þök; vinnupallar; klæðning útveggja og þök.