Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1489505887.34

    Líkamsrækt
    ÍÞRG2LÍ03
    12
    íþróttagrein
    Líkamsrækt
    Samþykkt af skóla
    2
    3
    Áfanginn er bæði bóklegur og verklegur og markmið hans er að nemendur fái innsýn í hina ýmsu þætti líkamsþjálfunar. Í þessum áfanga er áherslan á þrek- og þolþjálfun með fjölbreyttum þjálfunaraðferðum. Lagt er upp með að nemandinn upplifi líkamlega og félagslega ánægju í gegnum þjálfunina.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • starfsemi líkamans
    • áhrifum líkamsræktar á líkama og sál
    • ýmsum aðferðum við líkamsþjálfun
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • auka úthald sitt, styrk og liðleika
    • beita fjölbreyttum aðferðum við líkamsþjálfun
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • átta sig á mikilvægi hreyfingar fyrir andlega og líkamlega líðan einstaklingsins
    • vinna með öðrum og vera hluti af hópi
    Verkefni, mæting og ástundun í tíma.