Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1465382593.72

    Permanent 1
    HPEM1GB02(AH)
    1
    Verklegt permanent
    Grunnbraut
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    AH
    Nemandi kynnist grunnatriðum permanents og fær þjálfun í að gera skiptingar og rúlla upp nokkrum gerðum upprúlls. Farið er í smitvarnir og öryggisatriði. Kennd eru grunnatriði hárþvottar og næringarnudds. Einnig eru nemendum kynntar verklýsingar fyrir permanent og þeir fá grunnþjálfun í gerð þeirra og að fara eftir þeim. Notast er við æfingahöfuð við verklega þjálfun.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • grunnskiptingum fyrir permanentupprúll.
    • mismunandi spólustærðum og gerðum.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • gera grunnskiptingar fyrir upprúll.
    • gera upprúll á heilt höfuð.
    • búa til verklýsingar fyrir permanent.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • halda á greiðu á sama tíma og rúllað er upp.
    • að nota endapappír rétt.
    • ná jafnri spennu á hári frá rót að enda.
    • taka skiptingar í samræmi við spólustærð og fyrirhugaða útkomu.
    Símat.