Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1465225604.2

    Heimilisfræði með áherslu á heimilismat
    HEFR1HM02
    15
    Heimilisfræði
    Heimilismatur
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    B
    Áfanginn er verklegur. Markmið áfangans er að nemandi kynnist og þjálfist í helstu vinnureglum við að matbúa einfaldan heimilismat, leggja á borð og ganga frá. Farið er yfir grunnreglur um vinnuaðferðir, hollustuhætti og hreinlæti, vélar og tæki, borðsiði og umgengni, skipulag og samvinnu. Snyrtimennska og kurteisi er í hávegum höfð. Nemandi lærir að setja upp matseðil. Í lok áfangans er haldin veisla (kvöldverður) fyrir foreldra og gildir hún að hluta til inn í lokaeinkunn.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu matreiðslu- og framreiðsluaðferðum
    • mikilvægi hreinlætis í eldhúsi
    • helstu áhöldum og tækjum í eldhúsi og á bar
    • hráefni, næringargildi og hollustu
    • uppsetningu matseðla og matseðlafræði
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota almenna borðsiði og sýna kurteisi
    • fylgja uppskriftum og leiðbeiningum
    • nota viðeigandi áhöld, vélar og tæki í eldhúsinu
    • brjóta servíettur, leggja á og dúka borð
    • reikna út magn, næringargildi, kostnað og rýrnun
    • útbúa einfaldar máltíðir
    • sýna samvinnu og skipta verkum í eldhúsi
    • reikna út kostnað við máltíð
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skipuleggja máltíðir og litlar veislur ...sem er metið með... skriflegum verkefnum, útreikningum og verklegum æfingum
    • setja saman holla og næringarríka máltíð ...sem er metið með... t.d. skriflegu matseðlaverkefni út frá næringargildi og hollustu
    • áætla kostnað við máltíð eða litla veislu ...sem er metið með... að t.d. bera saman kostnað og næringargildi milli mismunandi máltíða
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.