Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1464868006.54

    Hársnyrting 3
    HKLI2GB03(CH)
    2
    Klippingar og form
    Grunnbraut
    Samþykkt af skóla
    2
    3
    CH
    Nemandinn fær þjálfun í að blanda saman mismunandi formum við klippingu á dömu og herra æfingahöfðum og á módelum. Þekking og beiting mismunandi aðferða við þynningu er aukin, einnig notkun klippivéla. Nemandinn lærir að greina klippingar út frá myndum og gera verklýsingar fyrir þær. Í áfanganum er lögð rík áhersla á gerð og nýtingu verklýsinga við klippingar.
    HKLI2GB03BH
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • flestum hugtökum sem tengjast klippingum.
    • formi klippinga út frá myndum.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • klippa snöggt með vél og skærum.
    • þynna hár með hníf og þynningarskærum.
    • klippa formklippingu á æfingahöfði og módeli samkvæmt kennslukerfi.
    • klippa dömu- og herraklippingar samkvæmt eigin verklýsingu á æfingahöfði og módeli.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • klippa eftir fyrirmynd.
    • sjá út form klippinga eftir myndum.
    • gera verklýsingu fyrir klippingu sem aðrir geta farið eftir.
    • geta þynnt niður í hnakka með vél og ólíkum kömbum.
    • geta séð fyrir sér lokaútkomu á klippingu með tilliti til andlitsfalls og hárgerðar.
    Símat.