Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1460562628.46

    Frá hugmynd til markaðssetningar
    NÝFR3SF05
    1
    Nýsköpun og frumkvöðlafræði
    Nýsköpun, stofnun og rekstur fyrirtækja
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Áhersla er lögð á virka þátttöku nemenda sem meðal annars felst í því að stofna, reka og loka fyrirtæki sem byggir á eigin nýsköpunarhugmynd/viðskiptahugmynd. Farið er í grunnatriði sem hafa verður í huga þegar viðskiptahugmynd er komið á framfæri. Lögð er áhersla á hópavinnu og að viðskiptahugmynd hópsins sé raunhæf. Nemendur koma sér saman um eina hugmynd (vöru eða þjónustu) og þurfa að fjármagna hana, framleiða, markaðssetja og selja. Áhersla er lögð á samvinnu atvinnulífs og skóla.
    NÝFR2HH05 eða sambærilegur áfangi
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • ferli frá hugmynd til markaðssetningar
    • ferli við að stofna og reka lítið fyrirtæki
    • mikilvægi góðrar stjórnunar og markmiðasetningar
    • mikilvægi góðrar viðskiptaáætlunar
    • fjármögnun fyrirtækja
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • setja sér raunhæf markmið
    • gera viðskiptaáætlun
    • vinna sjálfstætt
    • markaðssetja hugmynd
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta skilgreint þörf og unnið að lausn frá hugmynd til afurðar
    • koma auga á tækifæri til nýsköpunar
    • þróa nýsköpunarhugmynd í samvinnu við aðra
    • sýna frumkvöðlahátt
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.