Áfanginn er verklegur. Gengið er í hóp með kennara. Markmið áfangans er að nemandi fræðist um heilsugöngu og stuðla skal að því að nemendur geti sjálfir ræktað líkama sinn sér til heilsubótar og ánægju með gönguferðum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi hreyfingar
áhrifum góðrar heilsugöngu á líkamann
líkamlegri, andlegri og félagslegri heilsu
leiðum til að nýta líkams- og heilsurækt við daglegar athafnir
notkun púlsmæla og göngumæla
gildi samvinnu, umburðarlyndis og virðingar
forvarnargildi líkamsræktar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
ganga og velja sér góðar gönguleiðir
hreyfa sig, sér til heilsubótar og ánægju
nýta sér tæknina sem hvatningu til aukinnar hreyfingar
taka tillit annarra og hvetja þá
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
stunda hreyfingu án mikils tilkostnaðar
sýna öðrum virðingu við leik, keppni, nám og störf
vinna að bættri heilsu í samvinnu við aðra
styrkja jákvæða sjálfsmynd með þátttöku í greininni
gera hreyfingu að lífsstíl
Metin er þátttaka og virkni nemandans yfir önnina.