Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1432754219.5

    Íslenska sem annað mál - Menning og tjáning
    ÍSAN1MT05(FB)
    11
    íslenska sem annað mál
    Menning og tjáning
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    FB
    Í áfanganum fara nemendur í stuttar ferðir um Reykjavík og nágrenni. Skoðuð verður stjórnsýsla, menning og ólík fyrirtæki sem eru hornsteinar nærumhverfisins. Áhersla er lögð á tjáningu bæði í töluðu, rituðu og myndrænu máli og vinna nemendur verkefni út frá þeim heimsóknum sem farið er í. Markmiðið er að kynna nemendum nærumhverfi sitt og menningu, taka þátt í umræðum og kunna skil á þeim stöðum sem heimsóttir verða.
    Áfanginn er tekinn samhliða ISLA1BE05 eða ISLA1BT05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • menningu, samskiptavenjum og siðum í nærumhverfinu
    • umhverfi Reykjavíkur og nágrennis
    • aðaláherslum í stjórnsýslu nærumhverfisins
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • ferðast um Reykjavík og nágrenni
    • kynna áhugaverða staði fyrir samnemendum sínum
    • tjá sig á einfaldan hátt skriflega, munnlega og myndrænt um nærumhverfi sitt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • hefja samtal með einföldum setningum á íslensku
    • geta ferðast og heimsótt staði í nærumhverfi sínu
    • skilja að hluta til stjórnsýslu í nærumhverfinu
    Námsmat Þekking er metin með verkefnum sem unnin eru í kennslustundum. Leikni er með þátttöku í umræðuhópum og skilningi á verkefnum sem tengjast vettvangsferðum. Hæfni er metin í verkefnavinnu og virkni í hópasamstarfi.