Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1431946119.08

    Hreyfing A
    HREY1AI01
    7
    Hreyfing
    Almenn líkams og heilsurækt, íþróttir
    Samþykkt af skóla
    1
    1
    A
    Áfanginn er verklegur og nemendur taka hann samhliða Lífsstíl A. Lögð er áhersla á að nemendur fái fjölbreytta hreyfingu sem styrkir hjarta- og æðakerfið, byggir upp vöðva og eykur liðleika. Leitast er við að hver og einn geti tekið þátt á sínum forsendum en að allir séu virkir.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • forsendum og áhrifum þjálfunar á líkama, heilsu og líðan
    • mismunandi aðferðum til heilsuræktar
    • mikilvægi upphitunar, liðleika- og styrktarþjálfunar
    • þoli, uppbyggingu þess og mismunandi þolþjálfun
    • slökun
    • fjölbreyttum möguleikum til hreyfingar
    • grunnreglum ýmissa íþróttagreina
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • stunda líkams- og heilsurækt
    • stunda almenna og sérhæfða upphitun
    • stunda markvissa og fjölbreytta styrktar-, liðleika- og þolþjálfun
    • tileinka sér slökun
    • iðka æfingar og hreyfingu sem stuðla að bættri líkamsbeitingu
    • beita samvinnu sem stuðlar að tillitsemi og hvatningu
    • klæða sig til íþróttaiðkunar eftir aðstæðum, úti sem inni
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • meta eigið þol, styrk og liðleika
    • skipuleggja eigin þjálfun
    • leysa af hendi æfingar og leiki sem viðhalda og bæta samskipti, líkamshreysti og heilbrigðum lífsstíl
    • glíma við fjölbreytt verkefni sem snúa að alhliða hreyfingu, líkams- og heilsurækt
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.