Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1424868806.79

    Hjólað/gengið í skólann
    ÍÞRÓ1HJ01
    42
    íþróttir
    Hjólað í skólann
    Samþykkt af skóla
    1
    1
    Í þessum íþróttaáfanga býðst nemendum að fá íþróttaeiningu fyrir það að koma sér í og úr skóla fyrir eigin vélarafli, s.s. gangandi, hjólandi eða á hjólabretti. Markmiðið er að efla heilsu nemenda um leið og stuðlað er að minni mengun í borginni af völdum bifreiða.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • göngu- eða hjólastígakerfi í nærumhverfi sínu
    • áhrifum hreyfingar á heilsu, líkamlega sem andlega
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • finna hentugar göngu- eða hjólaleiðir til og frá skóla
    • nota hugbúnað snjallsíma eða annarra smátölva til að mæla göngu- eða hjólaferðir sínar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nota eigin hreyfingu til samgangna og heilsubótar fyrir sjálfan sig og umhverfi sitt
    Nemendur þurfa að ganga eða hjóla 150 km á önninni til að fá einingu. Lágmarksvegalengd sem farin er hverju sinni er 1,5 km.