Það kom upp villa
senda inn
Áfangi
Áfangi Nánari upplýsingar
Fjölmiðlafræði skólablaðið
Fjölmiðlafræði skólablaðið
Útgáfa skólablaðs. Nemendur vinna að hönnun umbrots, uppsetningu, efnisskrifum, ritstjórn, söfnun auglýsinga, markaðssetningu, markaðsskimum, fyrirsætustörfum og ljósmyndun.
FJÖL1FS05 eða sambærilegur áfangi
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- umbroti tímarita
- samhengi kostnaðar og umfangs tímarits
- samhengi stjórnunar, umbrots, efnisvinnslu og auglýsinga
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- umbrjóta
- ritstýra
- tengja saman myndir og áhugaverðan texta
- safna auglýsingum
- skila á réttum tíma
- vinna í ritnefnd
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- gefa út skólablað eða sambærilega gerð af tímariti
Byggist á lokaafurð sem skilað er inn á réttum tíma, framlagi hvers og eins og virkni. Leiðsagnarmat.