Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1423827598.23

    Jarðsaga
    JARÐ2JS05
    8
    jarðfræði
    jarðsaga
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum er fjallað um sögu jarðar, tímabil hennar og hvað einkennir. Sérstök áhersla verður lögð á jarðsögu Íslands, myndun og mótun lands fyrir og á ísöld. Áfanginn byggir að miklu leyti á verklegum æfingum og verkefnum sem nemendur vinna undir leiðsögn kennara.
    5 feiningar í jarðfræði á 2. þrepi.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • • helstu tímabilum jarðsögunnar
    • • þróun lífs á jörðu
    • • þeim ferlum sem mótað hafa jörðina
    • • jarðsögu Íslands
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • • lesa fræðilegan texta í jarðfræði á íslensku og ensku
    • • notfæra sér jarðfræðikort
    • • afla upplýsinga um jarðfræðileg fyrirbæri
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • • yfirfæra fræðin á umhverfi sitt
    • • lesa og túlka landslag með tilliti til aldurs
    • • tjá og miðla jarðfræðilegum upplýsingum á fjölbreyttan hátt
    Skýrslur og skilaverkefni úr verklegum æfingum. Hlutapróf sem nemendur leysa í kennslustundum eða utan þeirra Lokapróf er í áfanganum.