Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1422451619.67

    Íþróttir í daglegu lífi
    ÍÞRÓ1AA01
    31
    íþróttir
    almennar íþróttir A
    Samþykkt af skóla
    1
    1
    Í áfanganum skal stefnt að því að fræða nemendur um gildi þess að iðka íþróttir að og temja sér heilbrigðan lífsstíl í hvívetna. Reynt er að hafa kennsluna einstaklingsbundna og tengja hana bæði áhugasviði nemenda og getu þeirra.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • • gildi hreyfingar fyrir líffærakerfi líkamans
    • • mikilvægi hreyfingar með tilliti til heilsueflingar og vellíðunar
    • • gildi þess að huga að fæðuvali
    • • mismunandi íþróttagreinum ekki síst eftir áhugasviði
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • • setja sér raunhæf markmið varðandi hreyfingu
    • • framkvæma þol- og styrktaræfingar á markvissan og fjölbreyttan hátt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • • stunda líkamsrækt við hæfi eftir að námi í áfanga lýkur
    • • forðast lífsstíl sem leitt getur til áunninna lífsstílssjúkdóma
    • • finna leiðir til að gera líkamsrækt að sjálfsögðum hlut í daglegu lífi
    Námsmat getur falist í skyndiprófum og verkefnum ásamt mati á ástundun, virkni og framförum þar sem það á við.