Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1421407449.02

    Grunnáfangi í efna- og eðlisfræði
    RAUN1EE05
    1
    Raungreinar
    Efnafræði, eðlisfræði
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í áfanganum er farið í grundvallaratriði efna - og eðlisfræði með það að markmiði að nemendur þekki helstu grunnhugtök og nái að tengja þau við fyrri þekkingu og daglegt líf. Einnig að þeir þjálfist í grundvallarvinnubrögðum við tilraunir í efna- og eðlisfræði, kynnist söfnun gagna, túlkun og framsetningu niðurstaðna.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • • atóminu, lotukerfinu, frumefnum, efnasamböndum og efnablöndum
    • • efnatengjum og nöfnum efnasambanda
    • • efnahvörfum og stillingum efnajafna
    • • mælieiningum og eðlismassa
    • • hraða og hröðun
    • • krafti, afli, vinnu og stöðuorku
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • • vinna með lotukerfið við lausnir verkefna
    • • gefa efnasamböndum efnaheiti, setja saman efnaformúlur og stilla efnajöfnur
    • • breyta á milli mælieininga
    • • reikna dæmi tengd hraða/hröðun, krafti, afli, vinnu og stöðuorku
    • • nota tæki og tól á rannsóknarstofu við einfaldar tilraunir
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • • tengja efna- og eðlisfræði við umhverfi sitt og við daglegt líf
    • • nota undirstöðuatriði efna- og eðlisfræði við frekara nám
    Til námsmats gilda hlutapróf, mæting, virkni og skýrslur úr verklegum æfingum ásamt gagnvirkum verkefnum.