Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1421141030.33

    Bókmenntir á 20. öld, frá nýrómantík til módernisma
    ÍSLE3NM05
    64
    íslenska
    frá nýrómantík til módernisma
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Fjallað er um íslenskar bókmenntir frá 1900 til 1970 út frá bókmenntastefnum, þ.e. rómantík, félagslegu raunsæi og módernisma. Lögð er áhersla á hvernig bókmenntirnar endurspegla þjóðfélagið.
    ISLE3LF05 eða sambærilegur áfangi.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • öllum helstu bókmenntahugtökum
    • mismunandi tegundum bókmennta
    • bókmenntastefnum á Íslandi frá 1900-1970
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa sér til gagns og gamans og rýna í bókmenntatexta frá 1900-1970
    • nýta sköpunargáfu og sýna sjálfstæði við úrvinnslu verkefna
    • flytja af öryggi vel uppbyggða kynningu á krefjandi efni
    • skrifa ritgerðir þar sem hann beitir gagnrýnni hugsun við úrvinnslu og kemur efninu á framfæri á skýran og greinargóðan hátt á blæbrigðaríku máli
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • draga saman aðalatriði, beita gagnrýnni hugsun við lestur, túlkun og úrvinnslu krefjandi texta og geta miðlað því á skýran hátt til samnemenda sinna
    • átta sig á samfélagslegri skírskotun og ná duldum boðskap og hugmyndum
    • sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
    • sýna þroskaða siðferðisvitund, víðsýni, sköpunarhæfni og samlíðan í málflutningi sínum, umfjöllun og verkum
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá