Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1417006247.05

    Byrjunaráfangi í eðlisfræði fyrir náttúruvísindabraut
    EÐLI2BY05
    29
    eðlisfræði
    byrjunaráfangi í eðlisfræði fyrir náttúruvísindabraut
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í þessum grunnáfanga í eðlisfræði er farið yfir hreyfingu hluta eftir beinni línu, vigra í tvívíðu rúmi, kraftalögmál Newtons, orkuvarðveislu, skriðþunga, þrýsting og ljósgeislafræði. Áhersla verður á skilning nemandans á efninu og að hann geti tengt það við raunveruleg vandamál.
    NÁTT1GR05 og STÆR2AF05 eða sambærilegir áfangar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu grunneiningum í eðlisfræði
    • útreikningum á vigrum
    • sambandi staðsetningar, hraða og hröðunar hluta
    • hreyfingu hluta eftir beinni línu
    • helstu kraftalögmálum
    • hreyfingu hluta á skáflötum
    • fjaðurkröftum
    • vinnu og afli
    • orkulögmál
    • þrýsting í lofti og vökva
    • skriðþunga og atlagi
    • ljósgeislafræði
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • reikna og teikna línurit af staðsetningu, hraða og hröðun hluta eftir beinni línu
    • nota vigra í útreikningum
    • sundurliða krafta
    • nota kraftalögmál í útreikningum á hreyfingu hluta
    • reikna út vinnu og afl
    • reikna skriðorku og stöðuorku
    • reikna út kraftvægi
    • reikna út skriðþunga
    • reikna út þrýsting í lofti og vökva
    • reikna brotstuðla ljóss
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • sýna sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum
    • bera ábyrgð á eigin námsframvindu
    • vinna í hóp til þess að leysa raunveruleg vandamál með eðlisfræði
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.