Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1417005811.27

    Jarðsaga
    JARÐ2JS05
    21
    jarðfræði
    jarðsaga
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Áfanginn fjallar um landrek ákveðinna svæða og myndun úthafa og fellingafjalla. Rýnt er í kenningar um uppruna jarðar og aldursákvarðanir. Fjallað er um þróun lífsins og kenningar um útdauða. Farið er í jarðsögutöfluna og hvað einkennir mismunandi tímabil jarðsögunnar.
    JARÐ1AJ05 eða sambærilegur áfangi
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þróun jarðar frá örófi alda
    • jarðsögutöflunni og helstu einkennum hvers tímabils
    • tilurð ísalda og hlýskeiða
    • grundvallaratriðum í þróun lífsins
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • greina mismunandi uppruna jarðlaga út frá mismunandi jarðsögutímabilum
    • átta sig á loftslagsbreytingum og ummerkjum ísalda og hlýskeiða í nútímalandslagi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • vera viðræðuhæfur þegar jarðfræðileg málefni ber á góma
    • lesa fræðigreinar um jarðfræðileg málefni með gagnrýnni hugsun
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.