Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1414615472.95

    Læknaritun 2
    LÆKN3HT09(FÁ)
    1
    Læknaritun
    heila- og taugaskurðlækningar, lýtalækningar
    Samþykkt af skóla
    3
    9
    Unnið er áfram með að skrifa í sjúkraskrár og þjálfa fagorð varðandi þau skrif. Í áfanganum er skrifað fyrir heila- og taugaskurðdeild, lýtalækningadeild, þvagfæraskurðdeild, hjarta- og lungnaskurðdeild, augnskurðlækningadeild, blóðfræði, háls- nef- og eyrnalækningadeild og bæklunarskurðdeild. Fjallað er um Diagnosis-related group – DRG, hugtakið útskýrt og hvernig það helst í hendur við greiningar í sjúkraskrám. Kynntir eru mismunandi kóðar svo sem ICD10 og NCSP+, tilgangur þeirra og mikilvægi.
    LÆKN2LY09
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • skrifum fjölbreyttra sjúkraskráa
    • hvað DRG er og notagildi þess
    • tilgangi ICD10 og NCSP+ kóða í sjúkraskrám
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skrá í sjúkraskrá eftir fjölbreyttum upplestri
    • skrá DRG í sjúkraskrár
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skrifa eftir fjölbreyttum upplestri í sjúkraskrá fyrir lýtalækningadeild, heila- og taugaskurðdeild, þvagfæraskurðdeild, hjarta- og lungnaskurðdeild, augnskurðlækningadeild, blóðfræði, háls- nef- og eyrnalækningadeild og bæklunarskurðdeild
    • setja DRG rétt inn í sjúkraskrár með greiningum
    Símat, verkefni, lokapróf