Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1414615107.71

    Læknaritun 1
    LÆKN2LY09(FÁ)
    1
    Læknaritun
    hjartalækningar, lyflækningar, sykursýki
    Samþykkt af skóla
    2
    9
    Í áfanganum er fjallað um sjúkraskrá og tilgang hennar. Fjallað er um uppsetningu ásamt færslum í reiti í sjúkraskrá. Farið er yfir lög um sjúklinga og sjúkraskrár, með áherslu á það sem viðkemur starfi læknaritara. Fjallað er um þagnarskyldu og mikilvægi hennar. Einnig er farið í skrif fyrir mismunandi sérgreinar læknisfræðinnar og sérfræðiorð fyrir hvert svið. Í áfanganum er skrifað fyrir lyflækningasvið svo sem sykursýki, almennar lyflækningar og hjartalyflækningar. Einnig er skrifað fyrir almennt skurðsvið, röntgendeild, taugalækningadeild, barnasvið og geðsvið.
    Stúdentspróf eða sambærileg menntun, samanber inntökuskilyrði á læknaritarabraut
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • sjúkraskrám og varðveislu þeirra
    • gildandi lögum um réttindi sjúklinga og sjúkraskrár
    • hvernig einfaldar sjúkraskrár eru skrifaðar á tilteknum deildum
    • forritum sem notuð eru við vinnslu sjúkraskrár
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skrá í sjúkraskrá eftir einföldum upplestri
    • nota mismunandi forrit sem eru sérhæfð fyrir heilbrigðiskerfið
    • skrifa eftir upplestri einfaldar nótur í sjúkraskrá fyrir lyflækningasvið, almennt skurðsvið, röntgendeild, taugalækningadeild, barnasvið og geðsvið
    • leita að upplýsingum í sjúkraskrá
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nota rafræna sjúkraskrá
    • vinna eftir lögum er varða sjúklinga og sjúkraskrár
    • umgangast gögn í sjúkraskrám af fagmennsku
    • a
    • b
    Símat, verkefni, lokapróf