Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1414612304.96

    Fagmál lyfja- og læknisfræði
    FALÆ3HU02(FÁ)
    2
    Fagmál lyfja- og læknisfræði
    Hugtök og sjúkdómagreiningar
    Samþykkt af skóla
    3
    2
    í áfanganum er fjallað um latneskan orðaforða með áherslu á orðmyndun og skilning á hugtökum. Einnig er fjallað um viðamikinn fagmálsorðaforða er snýr að líffæra- og aðgerðarheitum. Áhersla er lögð á lestur sjúkdómagreininga ásamt æfingum í orðmyndun og málfræðigreiningum í þeim flokki.
    FALÆ3OB04
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • latneskum hugtökum sem notuð eru um líffærafræði, sjúkdómagreiningar og aðgerðir
    • flóknum latneskum orðum sem fjalla um tengsl heilbrigðis og sjúkdóma
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota fagmál þegar upplýsingar eru skráðar í sjúkraskrá
    • leita upplýsinga um fagmál þegar þörf er á
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • lesa úr flóknum fagorðaforða um líffærafræði og aðgerðir
    • útskýra fagorð sjúkdómsgreininga og tengsl þeirra við önnur fagorð í sjúkraskrá
    Gagnvirk próf og æfingar, lokapróf úr afmörkuðu efni