Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Markmiðið er að nemendur kynnist fjölbreyttum aðferðum við mótun. Lögð verður áhersla á gagnrýna og skapandi hugsun með samræðum við nemendur um þeirra eigin verk og annarra. Fjallað verður um aðferðir og efnisnotkun í mótun.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Ýmsum aðferðum til að nota í mótun
Ýmsum efnum til að nota í mótun
Að vinna verk í leir
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Að vinna verk í gips
Að vinna verk í leir
Að vinna verk í pappamassa
Að vinna verk með fjölbreyttum aðferðum
Að vinna verk úr fjölbreyttum efnum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Vinna verkefni, til dæmis í leir, til brennslu
Að nýta þekkingu sína til listsköpunar í tómstundum
Að sækja áframhaldandi nám eða námskeið á sviði myndlistar
Námsmatið getur verið fjölbreytt og einstaklingsmiðað, s.s. leiðsagnarmat, jafningjamat, verkefnaskil, virkni í kennslustundum, mæting, sjálfsmat, ástundun og lokapróf. Regluleg endurgjöf er frá kennara á vinnuframlag nemenda og verkefnaskil.