Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Fjallað verður um ýmis sígild tónskáld frá 18. öld og að fyrri hluta 20. aldar.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Hvað felst í hugtakinu sígild tónlist
Fjölbreytileika hljóðfæra í sígildri tónlist
Uppbyggingu mismunandi hljómsveita
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Að þekkja ýmis hljóðfæri sem notuð eru í sígildri tónlist
Að geta nefnt nokkur sígild tónskáld
Að geta nefnt nokkur sígild tónverk
Að geta tengt tónverk við höfund
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Greina áhugasvið sín varðandi sígilda tónlist
Geta tjáð öðrum áhugasvið sín varðandi sígilda tónlist
Geta hlustað fordómalaust á ýmis tóndæmi, og myndað og sagt skoðun sína á þeim
Taka þátt í umræðum um sígilda tónlist
Námsmatið getur verið fjölbreytt og einstaklingsmiðað, s.s. leiðsagnarmat, jafningjamat, verkefnaskil, virkni í kennslustundum, mæting, sjálfsmat, ástundun og lokapróf. Regluleg endurgjöf er frá kennara á vinnuframlag nemenda og verkefnaskil.