Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Fjallað verður um vinsæla söngleiki eða leikhúsverki þar sem tónlist er í stóru hlutverki, sem settir hafa verið upp á Íslandi og/eða í öðrum löndum. Fjallað er um söngleiki frá árinu 1940 til dagsins í dag sem hafa notið hylli í leikhúsum og kvikmyndum.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Hugtakinu söngleikur
Mikilvægi hlustunar
Hvaða söngleikir eru ætlaðir mismunandi aldurshópum
Fjölbreytileika söngleikja
Að smekkur manna er misjafn
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Að koma skoðunum sínum á framfæri varðandi efnið
Taka þátt í umræðum
Nýta sér styrkleik sína og benda á áhugasvið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Geta hlustað á sjónarmið annarra af víðsýni og tekið virkan þátt í umræðum
Geta nýtt sér fjölbreytta miðla til að nálgast efnið
Geta sagt frá því hvað höfðar einkum til hans varðandi söngleiki
Námsmatið getur verið fjölbreytt og einstaklingsmiðað, s.s. leiðsagnarmat, jafningjamat, verkefnaskil, virkni í kennslustundum, mæting, sjálfsmat, ástundun og lokapróf. Regluleg endurgjöf er frá kennara á vinnuframlag nemenda og verkefnaskil.