Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Fjallað verður um nemendasvæði í skólanum, merkingar og táknmyndir, reglur á gönguleiðum og reglur varðandi almenna umferð.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Ákveðnum svæðum í skólanum og hlutverki þeirra
Að skilaboð felast í merkingum
Ýmsum reglum varðandi umferli
Að nýta sér bókasafn, mötuneyti, salerni og félagsaðstöðu
Að þekkja ákveðnar táknmyndir og vita fyrir hvað þær standa
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Að fylgja hópi í gönguferð
Að ganga ákveðna vegalengd
Að nota almennar samgöngur
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Sækja ákveðna staði innan skólans og nýta sér þjónustu þeirra
Skilja merkingar og táknmyndir í sem víðustu samhengi og tileinka sér skilaboð þeirra
Fara eftir almennum umferðarreglum
Námsmatið getur verið fjölbreytt og einstaklingsmiðað, s.s. leiðsagnarmat, jafningjamat, verkefnaskil, virkni í kennslustundum, mæting, sjálfsmat, ástundun og lokapróf. Regluleg endurgjöf er frá kennara á vinnuframlag nemenda og verkefnaskil.