Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1410291767.27

    Enska með áherslu á bókmenntir
    ENSK1BÓ04
    13
    enska
    bókmenntir 20. aldar
    Samþykkt af skóla
    1
    4
    Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Áhersla er á læsi í víðu samhengi, s.s. á bókstafi og hljóð, umhverfi, tákn, reglur, samskiptamiðla, hugtök, tjáskipti, tilfinningar, lesefni og samskipti. Vinnuferlið miðast við að efla færni og sjálfsmynd nemenda til að takast á við fjölbreytt lesefni við hæfi hvers og eins.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Einföldum bókmenntatexta á enskri tungu
    • Ýmsum aldurs- og áhugamiðuðum hugtökum á enskri tungu
    • Mikilvægi lestrar og bókmennta
    • Mikilvægi tjáningar og hlustunar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Finna sér bókmenntir við hæfi á bókasöfnum og öðrum stöðum
    • Nýta sér bókmenntir á fjölbreyttu formi, s.s. á stafrænum miðlum
    • Tjá sig í mæltu og/eða rituðu máli
    • Vinna með texta sem hann hefur lesið og/eða hlustað á
    • Nýta sér leiðréttingarforrit og önnur hjálpargögn til verkefnavinnu
    • Lesa upp og/eða tjá sig fyrir framan aðra
    • Lesa og/eða hlusta á texta sér til gagns og gleði
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Nýta sér enskar bókmenntir
    • Auka sjálfstraust sitt og trú á eigin málfærni í tjáningu og/eða ritun
    • Nýta sér læsi í víðu samhengi
    • Hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
    • Lesa í og/eða nýta sér upplýsingar sem koma fram í útvarpi, sjónvarpi og í netmiðlum
    • Lesa í umhverfi, samskipti, tilfinningar og reglur í þeim tilgangi að átta sig á hvað er viðeigandi hverju sinni
    • Hlusta á aðra og tjá eigin skoðanir
    • Lesa ýmsa texta, s.s. bækur, fréttir og fræðigreinar
    Leiðsagnarmat, verkefnaskil, virkni í kennslustundum, mæting og lokapróf. Regluleg endurgjöf er frá kennara á vinnuframlag nemenda og verkefnaskil.