Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1409072823.4

    Bókmenntir, ritun, stafsetning og málfræði
    ÍSLE1UN05
    21
    íslenska
    undirbúningsáfangi í íslensku
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í þessum áfanga er lögð áhersla á að undirbúa nemendur undir frekara nám í íslensku á framhaldsskólastigi með því að fara í undirstöðuatriði málfræði, stafsetningar, ritunar og bókmennta. Jafnframt er markmiðið að efla ábyrgðartilfinningu nemenda gagnvart sjálfum sér, námi sínu og umhverfi. Áhersla er lögð á fjölbreyttar nálganir og sérstaklega er unnið með sköpun. Nemendur eru hvattir til að setja sér eigin markmið m.a. með því að taka þátt í að velja skiladaga á verkefnum. Í áfanganum þjálfast þeir í sjálfstæðum vinnubrögðum ásamt því að þeir fá tækifæri til að vinna með öðrum. Málfræði og málnotkun: Nemendur vinna með undirstöðuatriði málfræðinnar til að bæta málskilning og málnotkun. Nemendur lesa einnig margvíslega texta til að auka orðaforða sinn. Stafsetning: Nemendur vinna stafsetningarverkefni og þjálfa sig í því að nýta sér stafsetningarreglur og önnur hjálpargögn til að bæta stafsetningu sína. Ritun: Nemendur þjálfa sig í að rita fjölbreytta texta. Nemendur þjálfa sig einnig í byggingu ritsmíða og röksemdarfærslu ásamt því að nýta sér ýmis konar hjálpargögn, svo sem handbækur, orðabækur og leiðréttingaforrit. Bókmenntir: Bókmenntatextar eru valdir með það að markmiði að efla minni, skilning og orðaforða. Nemendum eru kynnt grunnhugtök bókmennta. Samskipti og framsögn:Nemendur taka þátt í umræðum og þjálfast í upplestri og framsögn.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • grunnhugtökum í ritgerðarsmíð
    • orðaforða umfram það sem gerist í talmáli
    • nokkrum tegundum bókmennta og nytjatexta og helstu hugtökum sem nýtast við umfjöllun um bókmenntir
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skrifa ýmsar tegundir texta í samfelldu máli þar sem framsetningin er skýr og skipulögð
    • notkun leiðréttingaforrita og annarra hjálpargagna til að lagfæra eigin texta
    • mismunandi blæbrigðum og málsniði í tal- og ritmáli
    • draga saman aðalatriði í fyrirlestrum og ritmáli, leita upplýsinga úr heimildum og nýta þær á viðurkenndan hátt sér til gagns
    • þekkja algengt líkingamál og orðatiltæki
    • lesa sér til gagns og gamans texta sem gera nokkrar kröfur til lesenda
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • semja stutta texta af ýmsu tagi með mismunandi málsniði.
    • leggja stund á tungumálanám, til dæmis með því að nýta sér orðasöfn og algengustu málfræðihugtök
    • beita einföldum blæbrigðum í málnotkun til að forðast einhæfni og endurtekningar
    • halda uppi samræðum og rökstyðja eigin fullyrðingar, ákvarðanir eða skoðanir á málefnalegan hátt
    • túlka og meta atburðarrás og persónur í bókmenntum eða annars konar frásögnum.
    Leiðsagnarmat. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.