Extra oral myndir, ljósmyndir, þjálfun í röntgenmyndatöku
Samþykkt af skóla
3
3
FÁ
Í áfanganum er þjálfun í röntgenmyndatöku, uppröðun og frágangi á röntgenmyndum við raunhæfar aðstæður. Kennd er ljósmyndun tanna og extra oral röntgenmyndataka. Farið er í umsjón með birgðahaldi
Allt bóklegt nám tanntækna ásamt RTGF2GR03
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mismunandi tækni við röntgenmyndatöku í raunhæfum aðstæðum
réttri líkamsstöðu þjónustuþega þegar teknar eru röntgenmyndir
aðferðum við notkun spegla og annarra hjálpartækja við ljósmyndatöku
aðferðum við birgðahald
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
taka röntgenmyndir í raunhæfum aðstæðum
stilla speglum og hjálpartækjum í munn þjónustuþega til að taka ljósmyndir af munni og tönnum
stilla þjónustuþega í rétta stöðu við extra oral myndatökur
fylgjast með og endurnýja birgðir sem tengjast röntgenmyndatöku
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta séð um röntgenmyndatöku og extra oral myndatöku í raunhæfum aðstæðum
geta aðstoðað við ljósmyndun af tönnum á faglegan hátt