Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1368189620.86

    Áhalda- og efnisfræði 1
    ÁEFR2TF03(FÁ)
    1
    Áhalda- og efnisfræði
    Algengustu verkfæri og tæki, rótfylling og gervitannagerð, tannfylling, Áhalda- og efnisfræði
    Samþykkt af skóla
    2
    3
    Í áfanganum er farið yfir heiti á algengustu verkfærum og tækjum sem notuð eru á almennum tannlæknastofum. Fjallað er um hvernig hand- og vinkilstykki virka og hvernig viðhaldi er best háttað á þessum tækjum. Verkfærin eru skoðuð eftir viðfangsefnum ásamt þeim efnum sem eru notuð í hvert skipti til dæmis við almenna tannfyllingu, rótfyllingar og gervitannagerð.
    Allt bóklegt nám tanntækna
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • tækjum sem notuð eru á almennum tannlæknastofum ásamt verkfærum sem notuð eru í almennri tannfyllingu, rótfyllingum og við gervitannagerð
    • efnum sem notuð eru í almennri tannfyllingu, rótfyllingum og við gervitannagerð
    • virkni og mismun á hand- og vinkilstykkjum ásamt viðhaldi á þeim
    • mismunandi tegundum bora og virkni þeirra
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • meðhöndla tæki, efni og verkfæri sem notuð eru við almennar tannlækningar, rótfyllingar og við gervitannagerð á réttan hátt
    • taka til rétt hand- og vinkilstykki í samræmi við meðhöndlun sem fyrir liggur og velja rétta tegund af borum í þau
    • taka til rétt efni og verkfæri í samræmi við meðhöndlun sem liggur fyrir
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • taka til efni og verkfæri í samræmi við þarfir við almennar tannlækningar, rótfyllingar og gervitannagerð
    • meðhöndla tæki, verkfæri og efni sem notuð eru við þessar aðgerðir af öryggi
    • ganga frá efnum og tækjum á viðeigandi hátt ásamt því að annast almennt viðhald á tækjunum
    • meðhöndla efni og tæki til þess að sem minnst fari til spillis
    Verkefni, símat og lokapróf